| Calendar |
![]() |
| Recent Comments | |
| Re: Enn fleiri myndir komnar inn | |
by Guðrún Erla | |
| Re: Fullt af nýjum myndum komnar í myndasafnið ! | |
by Amma Kolla | |
| Re: Fullt af nýjum myndum komnar í myndasafnið ! | |
by Guðrún Erla | |
| Statistics | ||
| Total posts: | 64 |
| Total comments: | 58 |
| Today's visitors: | 160 |
| Total visitors: | 113652 |
| Search | |
![]() | |
| Blog Archives |
![]() |
Article to show on the topSmellið svo á "Sign in" efst uppi (fyrir ofan myndina af okkur) til að skrá ykkur inn og svo á "Photos" til að skoða myndasafnið.
Hits: 121
Afmæli Eyrúnar, hestanámskeið Kristínar, sumarið, veiðiferðir, jeppaferðir og aðra skemmtilegar myndir.
Hits: 56
Hits: 66Við Kristín fórum að veiða í Meðalfellsvatni þar sem við náðum tveim fiskum í einu kasti(video) og svo fórum við öll í jeppaferð á Hellisheiði þar sem Eyrún stórskemmtisér þegar við fórum yfir vöð (video).
Hits: 77
Hits: 65
Hits: 76Reglulega koma inn myndir í Photos þó svo við erum ekki dugleg að skrifa.
Kristín byrjaði fótbolta en er nú líklega að draga sig út úr honum, hún er ekki alveg að finna sig þar þó svo henni finnist gaman í fótboltanum. Henni gengur vel í skólanum að vanda og er sérstaklega góð í reikningi finnst okkur. Það er sjaldgæft að hún geri villur. Þau eru að læra utan af margföldunartöfluna og eru komin í 4 og það vefst ekki fyrir henni.
Það slær ekkert af Eyrúnu, hún stækkar og styrkist. Núna er hún farin að skríða út um allt og þá er eins gott að fylgjast vel með henni því hún er mikill fiktari og setur allt uppí munninn. Kötturinn og dótið hans fær engan frið og er það mest spennandi.. svona fyrir utan ljósa takkann fyrir gólfljósið. Einnig getur hún sest upp ef hún var að skrífa og situr alveg hjálparlaust.
Við fórum í Hrísholt yfir helgina og lentum í stífluðu klósetti. Frosið var beint undir því en þar er 45° beygja og frís í henni stundum. Ég labbaði með börnin (Kristínu og Diljá) í Visa bústaðinn og sagði að börnin þurftu að skíta því stíflað væri hjá okkur! ;) Þar hitti ég gamlan skólafélaga og hann reyndi við stífluna en á endanum kom pípari sem tók klósettið af og aftengdi allt undir bústaðnum og þá fór þetta að virka.
Kíkið endilega í Photos, þeir sem hafa aðgang, en það er mun oftara uppfært en bloggið.
Hits: 46
Hits: 73Eins og vanalega (nema í fyrra þegar við ákváðum að sleppa því) að þá vorum við á síðasta séns að setja jólakortin póst. Ég fór á sunnudagsmorgni og tróð þeim í stútfullan kassan í Síðumúla með von að þau fyki ekki út enda komst ekki meira í hann. Svo kom í ljós að við gleymdum að senda nokkur jólakort svo sumir fá kannsi tvö á næsta ári ;)
Kristín er komin í jólafrí til 5. janúar en hún sleppur ekki alveg við lærdóminn. Við látum hana lesa aðeins svo hún haldi áfram sínu striki. Svo mun hún lesa hver fær hvaða pakka í ár en hún hefur hingað til alltaf rétt öllum pakkanan þannig að hennar hlutverk verður tvöfalt í ár.
Eyrún þokast nokkra sentimetra á gólfinu stundum, hægt er plata hana nokkra sentimetra í hvert sinn svo þetta brestur fljótlega á. Hún sat meira að segja í nokkrar sekúndur í sundinu í gær! Hún er enn með ofurfiktara eiginleikan prentað á ennið sitt. Við létum hana niður við jólatréð áðan og þá var pakkinn hennar Þórhildar komin upp í hana :)
Fullt af nýjum myndum komnar inn, meðal annars meira úr ungbarnasundi þegar Kristín kom með ofaní laugina og skötuveisla!
Hits: 66
Hits: 28
Hits: 97Eyrún fór í 3 mánaða skoðun 28. október. Hún fékk sprautu, var mæld og vigtuð. Hún er orðin 64 cm og 6,5 kg. Stór dama þar á ferð. Jafn stór og Kristín var 5 mánaða. Hún var algjör hetja þegar sprautað var í hana, gretti sig aðeins og grenjaði ekkert. Enda hefur hún varla grenjað síðan hún fæddist.
Daginn eftir skoðunina velti hún sér á magann. Hún velti sér af algjörri þrjósku og ætlaði sér að ná í tölvumúsina sem búið var að setja á gólfið við hliðina á henni. Hún gretti sig og öskraði, en svo tókst þetta að lokum hehe :)
Við fórum svo í sumarbústað í Munaðarnesi helgina 30. október til 1. nóvember. Fín afslöppun. Við fórum í bíltúr að Langavatni og óðum yfir ár og læki. Kristínu og Diljá fannst þetta algjört ævintýri :) Bústaðurinn lítill og kósí, mætti samt vera betra lag á vatninu þarna. En fyrir utan vatnsvandamál þá var ferðin góð. Eyrún var vær og góð í bústaðnum og það skipti öllu máli.
Á fimmtudag í síðustu viku þá fór Eyrún að herma eftir klappi. Hún krækir saman lófunum þegar ég syng "klappa saman lófunum". Algjör snillingur ;) Svo tók hún upp á því í fyrradag að fara að purra. Öskrar eða syngur fyrst og purrar svo. Bara sætt :)
Kristín og Elísabet vinkona hennar fóru svo með Kristni síðustu helgi að hitta Andrés Önd. Hann og bíllinn hans hans komu fljúgandi frá USA í tilefni af því að verið var að gefa út Andrésar Andar spilið. Eftir rúman klukkutíma í röð fengu þær loks að knúsa hann og láta taka mynd af sér með honum. Alsælar með það :)
Kristín er svo dugleg að læra að lesa. Hún er farin að lesa hraðar og af meira öryggi. Hún er búin að klára litlu aukaheftin sem hún var að fá heim og er núna byrjuð á að fá litlar lestrarbækur. Svo var hún líka að koma með aukabók í stærðfræði heim í gær. Ég ætlaði að dunda mér við að kenna henni aðeins í gær, en þá flaug hún áfram í stærðfræðini og reiknaði 10 blaðsíður. Vildi ekki hætta :) Við erum byrjuð að kenna henni margföldunartöfluna. Erum byrjuð á 0 sinnum, 1 sinni og 2 sinnum. Það var kennari sem benti okkur á það að það væri betra að kenna þeim sem fyrst margföldunartöfluna því þá væru þau betri í stærðfræði seinna meir.
Svo var hringt í heilsugæsluna í gær og pöntuð sprauta fyrir okkur. Við förum öll nema Eyrún í sprautu þann 18. nóvember. Eyrún má ekki fá bóluefni fyrr en hún er búin að ná 6 mánaða aldri. Vonandi fer þessa flensa að minnka meira svo ég geti farið að hreyfa mig meira með Eyrúnu. Það er hundleiðinlegt að vera í fæðingarorlofi í miðri svínaflensu. Ég þarf eiginlega bara að fara fram á nýtt orlof eftir að Eyrún er búin að fá sprautu :)
Hits: 71
Hits: 122Þessa dagana er Kristín í vetrarfríi í skólanum. Hún er alltaf að vera betri og betri í að lesa og finnst það mjög gaman. Einar var hjá okkur á mánudag því leikskólinn hans var lokaður og svo er Diljá í dag en hún er einnig í þessu vinsæla vetrarfríi.
Eyrún heldur áfram að dafna. Hún er orðin mjög forvitin eins og stóra systir var á hennar aldri. Hún snýr hausnum í allar áttir til að fylgjast með og þegar það er verið að gefa henni að drekka að þá má hún stundum ekkert vera að þvívegna forvitni. Einnig hefur hún mjög gaman að tæknihlutum eins og myndavélum og símum. Hún fer á ið þegar puttarnir komast í þetta. Sama á við um fréttablaðið ef ég er að lesa það með hana í fanginu að þá endar blaðið yfirleitt á gólfinu!
Hits: 84Eyrún var skírð laugardaginn 17. október síðastliðinn í Hafnarfjarðarkirkju og gekk það vel. Eitthvað var að afföllum gesta vegna veikinda en þá var bara meira að borða fyrir okkur hin ;). Við fengum Þórhall að skíra eins og hann gerði á sínum tíma með Kristínu og kökuboðið var svo í salnum fyrir innan. Við þökkum gestunum kærlega fyrir komuna og allar gjafirnar! Myndir eru í október albúminu.
Við fórum í foreldraviðtal í Langholtsskóla og var nokkur tilhlökkun að fá fyrstu umsögn um hvernig Kristínu gengur og fengum við bara góðar fréttir. Hún lærir vel, hlýðir og ca helmingur bekkjarins er byrjaður að lesa og hún er ein af þeim fremstu. Ekkert nema gott að frétta af stelpunum okkar !
Hits: 126Lífið hefur sinn vanagang og það er helsta er að Kristínu tekur áfram framförum í lestri og er gaman að sjá hversu vel henni gengur og áhuginn er mikill. Smá stærðfræði er farin að koma í heimalærdóminn og gengur það líka vel.
Eyrún er farin að slefa þónokkuð og spurning hvort tönnslur fari að koma á næstunni. Hún er mjög glögg á hvað er að gerast í kringum sig og fer mikið fram í að halda á hlutum og reyna að ná því dóti sem við sýnum henni. Svo um daginn náði hún að velta sér af maganum og yfir á bakið tvisvar sinnum!
Nú er stressið fyrir skírnina að magnast. Í dag verður byrjað að baka aðeins en á morgun nær það hámarki en ég hef það verkefni einna helst að vera með Eyrúnu á meðan Drífa bakar og svo baka ég eina súkkulaði banana köku. Drífa ætlar að baka skírnarkökuna sjálf og tókst sú prufa mjög vel til um daginn og var hin besta súkkulaði kaka. Hún er búin að fá sér köku skreytingarsett sem opnar nýja vídd í bakstri. Það kom babb í bátinn með kirkjuna þegar að var gáð á þriðjudag hvort ekki væri allt í guddí en kom í ljós að salurinn sem við áttum bókaðan er undirlagður af nýju orgeli í kirkjuna en sem betur fer var annar salur laus og er hann aðeins stærri. Svo kom einnig í ljós að kirkjan er líka undirlögð orgelpípum og aðeins opin á sunnudögum fram að aðventu! Presturinn kom með þá hugmynd að skíra í matsalnum og það hafði verið gert áður með góðri lukku en það vildi ég ekki svo við fáum kirkjuna á laugardaginn.
Hits: 73Eyrún var í skoðun á mánudag. Hún er orðin 62,5 cm og 6070 gr. Kristín var þetta stór 4 mánaða og þetta þung 3 mánaða. Eyrún er aðeins farin að dala í þyngd miðað við kúrfu, en hjúkkan talaði endalaust um hvað þetta væri styrk og flott stelpa :)
Eyrún er ekkert smá dugleg í sundinu. Kvartar lítið og er rosalega dugleg að fara í kaf. Hún stóð meira að segja í lófanum á Sóley og hjá pabba sínum í síðustu viku.Ótrúlega sterk miðað við aldur.
Kristín verður alltaf duglegri og duglegri að lesa. Hún er farin að fá aukabækur í lestri frá kennaranum og stendur sig rosalega vel. Hún kom svo með stærðfræðiverkefni heim í gær. Hún átti að leysa 2 verkefni. Annað var samlagning og hitt var frádráttur. Ótrúlegt hvað þau byrja að læra allt snemma núna.
Það er komnar inn nýjar myndir. Myndir af Eyrúnu í sundi, Kristínu á skautum og svo eitthvað fleira í september og október möppum.
Ég verð nú aðeins að fá að nöldra aðeins. Ég fór í Smáralindina með mömmu og Eyrúnu á fimmtudaginn. Ég labbaði inn í Name It og þar tók á móti mér afgreiðslukona á sextugsaldri. Hún byrjaði strax að segja: "Enn hvað þessi er ung. Og bara strax komin í Smáralind. Ekki seinna að vænna en að kenna henni strax á Smáralindina." Og svo fór hún að nöldra við aðra um pestir sem barnið gæti fengið. Ég var svo hissa að ég átti ekki til orð. Ég ætlaði að kaupa föt á Eyrúnu, enda er þetta barnabúð, en hætti snarlega við og labbaði út. Hún var búin að skemma fyrir mér daginn. Það er ekki eins og Eyrún sé að koma beint heim af fæðingardeildinni. Á maður að loka sig inni um leið og maður eignast barn og ekki fara út fyrr en þau eru 6 mánaða ? Svo þegar að ég var aðeins farin að jafna mig á þessu þá fer ég með Eyrúnu í skoðun á mánudag. Ég þarf að koma við í apótekinu í Glæsibæ, sem er á sama stað og heilsugæslan, til að kaupa D-dropa. Þar tekur á móti mér kona á sextugsaldri og spyr hvað Eyrún sé gömul. Ég segi henni það og hún svarar : "Bara strax komin á flakk svona ung!" Ég hálf kvæsi á hana að hún sé nú að koma úr ungbarnaskoðun. Hvað er þetta eiginlega með fólk að skipta sér svona mikið af ??? Af hverju má ég ekki hreyfa mig með barnið ?? Eyrún er á stærð við 4 mánaða barn, hraust og sterk, heldur haus....... þannig að ég myndi telja að ég mætti aðeins hreyfa mig með hana. Það er ekki eins og ég sé hangandi í búðum með barnið. Vonandi lendi ég ekki of mikið í þessu og vonandi lærir fólk bráðum að halda þessu fyrir sig!
Hits: 74Eyrún er farin að sjá miki betur, fyrir nokkru byrjaði hún að taka eftir og reyna að ná í leikföng sem við höfðum fyrir framan hana. Mikill einbeitingarsvipur og stútur á varniar fylgir eftir. Einnig sér hún vel yfir alla stofuna og þegar við erum að borða kvöldmat finnst henni skemmtilegast að horfa á stóru systir sína. Einnig finnst henni gaman að kettinum og þarf hann líka sína athygli og þá sérstaklega þegar Drífa er að gefa því þá hoppar hann á púðann og vill liggja nálægt henni og fá sitt klapp. Eyrún byrjaði í ungbarnasundi í Sundskóla Sóleyjar en það er sami sundskóli og Krístín fór í á sínum tíma og erum við búin að fara í tvo tíma. Fyrsti tíminn var léttur, einfaldar æfingar og börnin að kynnast vatninu. Svo misstum við að seinni tímanum en komum í þriðja tímann og þá voru börnin farin að kafa og standa í lófa! Eins gott að missa ekki úr tíma maður en Eyrún kafaði og fór létt með það!! Eyrún byrjaði að hlægja á föstudaginn en hún gerir það aðeins þegar Drífa er að purra magan og þar í kring. Hún kreystir upp smá hlátur.. sætt.
Kristín heldur ótrauð áfram að læra að lesa og finnst mjög gaman að því. Hún kom svo heim með fyrstu stærðfræði heimavinvuna og fór létt með hana en okkur finnst mjög gaman af að sjá hvað hún er að upplifa og við í gegnum hana... svo er þetta smá deja vú fyrir okkur.
Ég fór í jeppaferð í Þórsmörk á vegum Ferðaklúbbsins 4x4 og tók pabba með. Þetta var frábær ferð í alla staði og fengum við sól og logn allan tímann og svo voru haustlitirnir í á leiðinni og í Básum stórkostlegir. Bíllinn lenti í vatni yfir húddið í Hvanná og brá mér heldur í brún því loftinntakið er efst í húddinu en sem betur fer fór allt vel. Einnig var farið yfir Krossá en lítið var í henni og komumst við auðveldlega yfir.
Hits: 62
Kristín lærði að lesa í kvöld !!!!! :)
Ég var að hjálpa Kristínu að læra heima í kvöld og hún bara las :) Hún hló og hló þegar hún fattaði að hún væri að lesa. Náði svo í pabba sinn og gat varla lesið fyrir hann af hlátri :) Flót að ná þessu stelpan og nýbyrjuð í skólanum.
Það er nóg að gera í skólanum hjá Kristínu. Hún fór á skauta í dag og fer aftur tvo daga í næstu viku. Það er verið að kynna fyrir þeim skautafélag Reykjavíkur. Hún bað um að fá að æfa á skauta síðasta vetur og bað um það aftur í dag. Hún fer svo í íþróttaskólann 2x í viku til að kynnast sem flestum íþróttum. Eftir þennan vetur ætlum við að leyfa henni að ákveð sjálfri hvað hún vill æfa. Kristín fékk líka nýja heimavinnu í gær. Hún á að skrifa stafinn A í þessari viku og auðvitað æfa sig í lestri. Hún fær alltaf heimavinnu heim á þriðjudögum og skilar henni á mánudögum.
Kristín missti tönn nr. 2 á sunnudagskvöldið. Tannálfurinn kom og gaf henni 3 gullpeninga henni til mikillar lukku. Það eru komnar upp tvær fullorðinstennur í gatið í neðri góm svo hún virðist ekki vera tannlaus eins og svo mörg börn verða. Það kemur kannski seinna :)
Eyrún er orðin ansi dugleg að lyfta upp haus þegar hún er á maganum. Hún teygir sig líka eftir dóti og er farin að halda á því og smakka líka :) Hún brosir svo út í eitt allan daginn alveg eins og systir sín :) Við fórum með hana til læknis í gær þar sem það er enn smá hor í henni þegar hún vaknar og læknirinn var örugglega sannfærður um að við værum ein af þessu klikkuðu foreldrum þar sem það var ekkert að barninu. Við vildum bara vera viss um að það væri ekkert í eyrunum á henni. Hún er því stálhraust að hans mati og smitar ekki aðra af sínu litla hori. Sem er bara gott. Betra að fá að vera viss :)
Við gerðum svo tilraun af skírnarköku um helgina. Hún smakkaðist það vel að ákveðið var að búa hana til heima, enda kostar eitt stykki kaka um 10.000 krónur. Þvílíkt okur! Ég ætla því að spreyta mig í að gera fondant húð á kökuna og skreyta hana sjálf. Hún verður kannski smá klúðursleg, en smakkast vonandi vel þrátt fyrir klessulegt útlit :)
Hits: 65
Eyrún fór í dag í 6 vikna skoðun. Hún lenti nú samt í 7 viku þar sem öll fjölskyldan er búin að vera kvefuð. Allir sem betur fer að lagast. Eyrún ætlar að verða ansi stór þar sem hún er orðin 60 cm og 5580 gr. Er 5 cm stærri en Kristín á sama aldri. Kristján heimilislæknir skoðaði Eyrúnu líka og sagði að hún væri rosa flott stelpa, enda kom það foreldrunum ekki á óvart :)
Eyrún byrjaði í gær í ungbarnasundi. Er yngsta barnið þar. Við skelltum okkur aftur til Sóleyjar upp á Hrafnistu, enda er rosalega gott að vera hjá henni. Hún mundi meira að segja eftir okkur. Kallaði Kristínu sunddrottninguna. Hún man greinilega eftir því hvað hún var mikil prímadonna :)
Kristín er mjög ánægð í skólanum. Við byrjuðum að hjálpa henni í gær með heimavinnuna. Hún þurfti að lesa og æfa sig að skrifa stafinn Áá.Hún er líka búin að koma með brauð heim sem hún bakaði sjálf. Ótrúlegt hvað þau byrja snemma í öllu núna miðað við þegar við Kristinn vorum börn. Hún fer líka í smíðar, sund, ensku og fl.
Sandra (kötturinn) er þvílík lífsbjörg á þessu heimili. Kristín er svo ánægð með hana. Sér ekkert annað en köttinn þegar hún kemur heim. Hún er búin að sjá um að gefa henni vatn og mat síðan hún fékk hana og höfum við Kristinn því ekki þurft að sjá um matargjöf. Hún þurrkar meira að segja af skálunum :)
Kristinn er svo að fara í Eystri Rangá í fyrramálið. Vonandi veiðir hann marga laxa fyrir okkur þar sem hann er í miklu uppáhaldi hjá okkur öllum :)
Hits: 221

